Sýningin Ferðalög og frístundir var haldin í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 8.-10. maí. Þar var sameinað á einum stað allt sem viðkemur ferðalögum og frístundum, innanlands og utan. Samhliða Ferðalögum og frístundum var haldin sýningin Golf 2009, þar sem hægt var að nálgast á einum stað allt það nýjasta sem snertir golfíþróttina. Kjarninn í sýningunni var Ferðatorgið, þar sem ferðamálasamtök og markaðsstofur landshlutanna kynntu ferðaþjónustu á sínu svæði. Á Matartorginu voru þrjár matreiðslukeppnir á vegum Klúbbs matreiðslumeistara og vínþjónakeppni Vínþjónasamtaka Íslands.



 
09/júlí/2009
Rúmlega 72% sýnenda ánægð með Ferðalög og frístundir og telja grundvöll fyrir áframhaldi
Tæplega 68% svarenda töldu að markmið þeirra með þátttöku á sýningunni Ferðalögum og frístundum hefðu náðst frekar vel eða mjög vel og rúmlega 72% voru ánægð með sýninguna. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Outcome-hugbúnaður ehf. gerði meðal sýnenda á Ferðalögum og frístundum 2009 fyrir AP almannatengsl.   Meira

Eldri fréttir
 
 
 
 







 
Framkvæmd sýningar: Samstarfsaðilar:
 

Iðnaðarráðuneytið Ferðamálasamtök Íslands Ferðamálastofa Golfsamband Íslands Icelandair
AP almannatengsl - Laugavegi 182 - 105 Reykjavík - sími +354 514 1430 - fax +354 514 1478 - appr@appr.is - www.appr.is